Vafrinn þinn ætti að styðja javascript til þess að vefverslunin virki sem best.

um verslunina

Rumputuski er verslun og vefverslun sem leggur áherslu á að selja skemmtilegar og umfram allt vandaðar vörur.

Á boðstólum eru meðal annars hágæða dönsk og sænsk barnaföt fyrir börn á aldrinum 0-12 ára ásamt franskri og hollenskri litríkri gjafavöru.

Rumputuski hefur það að leiðarljósi að veita viðskiptavinum sínum bestu mögulegu þjónustu hverju sinni og leggur metnað sinn i hraða og örugga afgreiðslu.

Við bjóðum viðskiptavini Rumputuska hjartanlega velkomna og vonumst til að sem flestir finni hér eitthvað við sitt hæfi og gangi sáttir frá borði.

Ekki hika við að hafa samband ef eitthvað er, hvort sem það eru ábendingar vegna merkjanna eða einhvers sem ykkur þykir að betur mætti fara og við bregðumst við eftir bestu getu.

Í mars 2008 opnuðum við verslun að Laugavegi 27 og svo í október 2009 var kominn tími til að stækka við og fluttum við okkur um set í stærra og betra húsnæði að Laugavegi 61 þar sem viðskiptavinir Rumputuska eru hvattir til að koma í heimsókn og líta vörurnar augum.

Rumputuski ehf

Laugavegi 61
101 Reykjavík

Opnunartímar
Mánudaga - föstudaga: 11-18
Laugardaga: 11-16
Langan Laugardag: 11-17

kennitala: 571007-1340

VSK númer: 95912

Banki:336-26-1340

sími: 552 7722

rumputuski@rumputuski.is