Vafrinn þinn ætti að styðja javascript til þess að vefverslunin virki sem best.

skilmálar

Almennt

Rumputuski ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun ef um sendingu er að ræða. Sé varan ekki til á lager höfum við samband við kaupanda en við áskiljum okkur rétt til þess að hætta við pöntun sé vara ófáanleg. Öllum sendum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Rumputuski ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá okkur til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Einnig er hægt að sækja pöntunina til okkar sé þess óskað og sá valmöguleiki valinn þegar gengið er frá pöntun.

Sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður fyrir hverja senda pöntun er 700 kr nema pantað sé fyrir 10.000 kr eða meira, en þá fellur sendingarkostnaður niður.

Greiðsla pantana

Hægt er að greiða fyrir vörukaup með greiðslukorti (Mastercard, Visa, JCB, American express) þar sem greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslusíðu Valitor ehf (www.valitor.is). Einnig er hægt að greiða með millifærslu í heimabanka eða greiðslu við afhendingu, sé þess óskað að pöntunin sé sótt en ekki send.


Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 30 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin sé þess óskað. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd og verður kaupandi að bera kostnað við endursendingu. Vinsamlegast hafið samband ef spurningar vakna vegna þessa.

Verð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Engin ábyrgð er tekin á innsláttarvillum, myndbrengli eða röngum og úreltum upplýsingum.

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.